Jæja gott fólk.... ég hef snúið aftur sem
virkur þegn samfélagsins eftir að hafa setið heima og
lesið námsbækur upp á síðkastið. Ég var að þreyta inntökupróf
inn í sjúkraþálfunarskor í dag og í gær. Þetta próf skiptist í 6
hluta og tekur 2 daga..... það eru sem sagt 3 hlutar hvorn dag.
Alls 12 klsukkustundir á 2 dögum. Það var reyndar
ótrúlegt hvað dagurinn leið hratt. Þetta próf er þekkt
undir nafninu Barbapabbaprófið. Sama próf er fyrir læknisfræðiskor
og sjúkraþjálfunarskor og því voru um 250 manns að þreyta
prófið í einu. Ég held að ég geti sagt með nokkurri vissu
að hverfandi líkur eru á að nokkrum gangi vel á svona prófi,
þar sem efnið er úr öllum áttum og einnig er
töluvert af ýtarlegum spurningum... ekki mikið verið
að spyrja um aðalatriði. Nokkrar spurningar sem
féllu undir almenna þekkingu:
Hvað kallast löggjafarþing Írans ?
Hver samdi ballet sem olli uppnámi í Moskvu þegar hann
var frumsýndur árið 1911 ?
Hvað heitir höfuðborg Mongólíu ?
Hvaða land liggur við suðurlandamæri Nikvaragúa ?
Bókmennta- og spurningar um listir voru allmargar en ekki komu
margar spurningar um fyrirferðamiklar fréttir síðastleiðið ár
eða svo. Ég átti von á spurt yrði t.d. um nýafstaðnar kosningar,
rússneska njósnarann sem var drepinn með geislavirku efni (t.d.
hvað kallast efnið), forseta erlendra ríkja, einræðisherra eða
álíka.
Almenni þáttur prófsins var þó alls ekki verstur.... langt því
frá...... ég myndi segja að stærðfræðin og efnafræðin hafi verið
algert morð. Fólk sem er nokkuð vel að sér í þessum fögum átti í
erfiðleikum með spurningarnar.
Þó mér hafi bókstaflega verið slátrað í efnafræðihlutanum þá
gekk mér mun betur með aðra hluta..... mér gekk vel með 2/3 í
dag og held ég komi vel út þar. Sá prófhluti snéri að úrlausn
vandamála, íslensku, ensku og sögu. Ég held auk þess að mér
hafi ekkert gengið verr með t.d. stærðfræðina heldur en megninu af
hópnum. Ég tel að ég eigi fyllilega skilið að komast inn 
Nú er bara að bíða eftir niðurstöðunum og sjá hernig mér
hafi gengið samanborið við hina 